Forsíða
Verið velkomin á vef Raufarhafnar
Nýjustu fréttir
-
Hrútadagurinn á Raufarhöfn
Almennt - þriðjudagur 7.sep.10 11:36 - Lestrar 71Hrútadagurinn á Raufarhöfn verður haldinn 2. október í Faxahöllinni. Setning Hrútadagsins er kl. 14:00 og hefst salan á hrútum um kl. 14:10. Um kl. 15:30 er áætlað uppboð á 2-4 hrútum með þeim fyrirvara þó að nægilega góðir hrútar finnist.
Veitinga- og handverksala og ýmsar aðrar uppákomur verða á staðnum, m.a. geta gestir gætt sér á íslenskri kjötsúpu. Hópur áhugasamra kvenna um ullarvinnslu sýna jurtalitun og þæfingu.
Um kvöldið verður dansleikur í Félagsheimilinu Hnitbjörgum með Ríó Tríó ásamt Birni Thoroddsen. Tilboð er á gistingu og mat á Hótel Norðurljósum þessa helgi.
Hrútadagsnefndin
-
Sjaldgæf sjón
Almennt - föstudagur 7.maí.10 09:02 - Lestrar 908Flutningaskip við bryggju
-
Sumarvinna í Norðurþingi
Almennt - mánudagur 3.maí.10 14:26 - Lestrar 560Sumarið 2010 mun sveitarfélagið Norðurþing standa fyrir sumarvinnu fyrir fólk fætt 1993 og fyrr og hefur lögheimili í sveitarfélaginu Norðurþingi.
Sjá nánar hér






