Tónlistarskólinn
Tónlistarskóli Raufarhafnar
Sími 465-1257
Sagan
Tónlistarskóli Raufarhafnar var stofnaður 14. júlí 1976. Fyrsti skólastjóri tónlistarskólans var Margrét Bóasdóttir söngkona þá nýútskrifaður tónmenntakennari. Aðrir kennarar voru Dr. Orthulf Prunner píanóleikari frá Austurríki og Jóhann Jósepsson frá Ormarslóni. Margrét kenndi söng, blokkflautuleik, tónfræði og tónlistarsögu. Dr. Orthulf Prunner kenndi á píanó, orgel og gítar. Jóhann Jósepsson kenndi á harmonikku en það var í fyrsta sinn á Íslandi sem kennt var á harmonikku með annarri hljóðfærakennslu.
Fjöldi nemenda fyrsta árið voru 54, margt fullorðið fólk. Það var um 10% af íbúum Raufarhafnar. Sú prósentutala hefur haldist nánast óbreytt síðan.
Skólastjóri tónlistarskólanns er Sigurður G. Daníelsson. Sigurður hefur kennt í 29 ár, síðast á Þingeyri við Dýrafjörð og kennir á flest hljóðfæri.
Foreldrar athugið að þáttur ykkar í námi barnanna er mjög mikilvægur. Reglulegar æfingar og virk þátttaka í uppákomum í tónlistarnámi barnsins skila auknum áhuga þess og betri framvindu í náminu.




